Vorráðstefna JFÍ 8. mars 2024

Sælir kæru félagar,

stjórn JFÍ hefur ákveðið að lengja skráningarfrest á vorráðstefnu fram til kl 12:00, föstudaginn 4. apríl.

Árleg vorráðstefna Jarðfræðafélags Íslands verður haldin fimmtudaginn 10. apríl, 2014 í Norræna húsinu.

Um er að ræða heilsdagsráðstefnu, frá kl 09:00 til 17:00, en skráning verður frá klukkan 8:30. Auglýst er eftir ágripum erinda og veggspjalda og tilkynningu um þátttöku. Aðeins verður tekið við ágripum frá þeim sem eru þátttakendur á ráðstefnunni og eru skil ágrips tekin sem skráning á ráðstefnuna.

Lokadagur til að skila inn ágripi er föstudagurinn 4. apríl. Tekið skal fram hvort höfundar óska eftir erindi eða veggspjaldi. Ágrip,  veggspjöld og skráningingar sendist til Lúðvíks E. Gústafssonar, ludvik.e.gustafsson@samband.is  Við skráningu þarf að koma fram nafn, heimilisfang, kennitala, greiðandi og hvort viðkomandi er félagsmaður í Jarðfræðafélaginu. Þess er eindregið óskað að ágrip og skráning berist sem fyrst til að minnka vinnuálag á skipuleggjendur ráðstefnunnar.

Þátttökugjald er 11.000 kr. fyrir félagsmenn, 13.000 kr. fyrir utanfélagsmenn. Stúdentar við HÍ eru hvattir eru til að mæta, þeir þurfa ekki að greiða fyrir ráðstefnuna en nauðsynlegt er þó að þeir skrái sig. Áréttuð er samþykkt aðalfundar sem heimilar þeim félögum sem eru komnir á eftirlaun að taka þátt í ráðstefnunni án endurgjalds, en þeir greiði fyrir annað sem tengist ráðstefnunni. Þeim er þó að sjálfsögðu boðið upp á kaffi í hléum. Hádegisverður er innifalinn í ráðstefnugjaldi og eru þátttakendur beðnir um að taka fram við skráningu hvort þeir verði í mat.

Gert er ráð fyrir að flutningur hvers erindis og spurningar að því loknu taki 15-20 mín. Tímasetningar erinda eru með þeim fyrirvara að dagskráin breytist ekki. Ágrip mega vera að hámarki 2 bls. með myndum. Titill erindis verði með feitletruðu 16 pt. Arial (Helvetica), nöfn höfunda í Arial 14. pt. og stofnana í Arial 10 pt. Megintexti verði í Times New Roman, 12 pt. með einföldu línubili. Athugið að texti ágripa er ekki prófarkalesinn. Augljósar villur eru leiðréttar við uppsetningu og frágang en að öðru leyti er texti ágripanna og framsetning hans á ábyrgð höfunda. Ágrip verði á íslensku séu höfundar íslenskir, en erlendir gestir geta skilað ágripum á ensku. Tungumál ráðstefnunnar er íslenska, en heimilt verður að flytja erindi á ensku.